30
09
2016

Krafti afhentur veglegur styrkur

Flensborgarhlaupið er áheitahlaup og var að þessu sinni safnað fyrir Krafti, stuðningsfélagi fyrir ungt fólk með krabbamein og aðstandendur. Styrkurinn var afhendur á Flensborgardaginn, föstudaginn 30. september, sem haldinn er hátíðlegur í tilefni afmæli skólans þann 1. október næstkomandi.

kraftur_styrkur

Um 300 manns tóku þátt í hlaupinu í ár. Nemendur og starfsfólk Flensborgarskólans voru að sjálfsögðu áberandi sem og íþróttafólk úr röðum FH og Hauka.  Í þessum fjölbreytta hlaupahópi var margt fróðlegt að finna. Nokkrar fjölskyldur tóku á rás, m.a. vegna þess að málefnið var þeim skylt.

Flensborgarhlaupið 2016 tókst afar vel og fjölmennur hópur sem kom að skipulagi og framkvæmd. Við þökkum þessum eldhugum öllum saman fyrir frábærlega unnin verk. Það er hægt að telja upp fjölmarga en einn verður að nefna úr hópi hlaupaáhugamanna en það er Anton Magnússon, sem hefur verið eins og klettur með okkur allt frá upphafi. Þá er fyrirtækinu Sjónarspil einnig þakkað sérlega öflugt samstarf. Er á engan hallað þó þetta sé nefnt.

Við þökkum öllum sem lögðu okkur lið með þátttöku sinni eða annarri aðkomu frábæran stuðning. Hér er átt við Áhaldahús/þjónustumiðstöð Hafnarfjarðarbæjar, vefsíðuna Hlaup.is, Hlaupahóp FH, Marko Merki, Krafti, Reebok Fitness, Skokkhóp Hauka, Tímataka.net, Kiwanisklúbbinn Eldborg og lögregluna í Hafnarfirði. Sjónarspili (sjonarspil.is) er svo þakkað sérlega fyrir vefsíðuna Flensborgarhlaup.is.

Í lok verðlaunaafhendingar voru dregnir úr tugir vinninga með öðrum hætti.
Þessir aðilar gáfu vinninga og/eða styrktu hlaupið:

  1. 66°norður
  2. A4
  3. Adidas
  4. Aðalskoðun
  5. Andrea
  6. Altis
  7. Arion banki
  8. Augastaður
  9. Borgarleikhúsið
  10. Dís íslensk hönnun
  11. Eymundsson
  12. Fiskifélagið
  13. Fjarðarkaup
  14. Fríða – skart
  15. Hafnarfjarðarbær
  16. Hamborgarabúllan
  17. Hamingjan eflir heilsuna – Borghildur Sverrisdóttir
  18. Heiðdís Stúdíó
  19. Hress
  20. ÍSAM
  21. Kona tískuverslun
  22. MIA
  23. Mind
  24. Mjólkursamsalan (MS)
  25. Nói og Síríus
  26. Nýform húsgagnaverslun
  27. O’Johnson og Kaaber
  28. Pallett kaffihús
  29. Pfaff
  30. Prentun.is
  31. Reebok fitness
  32. Saffran
  33. Sigga og Timo
  34. Sjónarspil
  35. Smart Boutique
  36. Súfistinn
  37. Úr og gull